Þá tók ég þátt í þessum bensínkaupum núna í kvöld í Keflavík og fer að sofa pínu-pínu lítið ánægðari annað kvöld. Annars er þetta nú full drastískt en hvað getur maður gert? Það er allt á leiðinni til helvítis..allavega hef ég miklar áhyggjur af því sem koma skal. Ég hef þrjá munna að metta og það er ekki eins og það sé ódýrt núorðið að versla í Bónus...
Vonandi koma Geir & kó efnahaslífinu í gang aftur. Annars veit maður varla hvort maður eigi að þora að vona eða búast við nokkrum sköpuðum hlut núorðið?
Langar biðraðir við bensínstöðvar á Suðurnesjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
FALIÐ VALD útskýrir margt og hefur opnað mörg augu.
Georg P Sveinbjörnsson, 7.10.2008 kl. 02:46
Já allir að fara á taugum og svo var eldsneytið að lækka um heilar 12 krónur að meðaltali á bensín og dísel þannig að fólk hljóp verulega á sig og það út af sms gabbi lol ég á bágt með að hlæja ekki held að þþetta krepputal se orðið að aðeins of miklum farsa og fólk ætti að sýna aðeins meia æðruleysi og róa sig og sjá hvað setur
Guðmundur (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 10:30
Æi mér fannst svo fyndið þegar bensínið lækkaði eftir að allir voru búnir að fylla bílana sína
Bjarni Þorleifsson (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 22:16
Hehe var maður tekinn í rassgatið eða hvað?!?!
Get nú ekki annað sagt...
Held ég fái mér bara hjól?
Birgitta Ásbjörnsdóttir, 10.10.2008 kl. 00:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.