Haha..ég er þáttakandi í þessu vöruhamstri...mömmu finnst ég ekkert sniðug, segir að ég sé allt of opin fyrir svona hræðsluáróðri. En hvað um það, ég á þó allavega til nóg af hrísgrjónum og pasta ef í hallæri fer. Sendi svo bara eftir mjólk í sveitina til Röggu vinkonu..djöfull er maður sniðugur!
Nei svona í alvöru talað þá er ég farin að glotta vel út í annað og eiginlega ræð ekki við sjálfa mig. Þetta er svo farsa og fjarstæðukennt ástand að maður er hættur að vita í hvorn fótinn maður eigi eiginlega að stíga í...
Ég er farin að bíða eftir einhverjum róttækum aðgerðum hérna, afsögn ríkisstjórnarinnar, uppsögn seðlabankastjóra, breytingar?
Íslendingar birgja sig upp af mat | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Skömm þessara gl....manna er slík, að þeir ættu að loka öllum sínum " sjoppum" á Íslandi - og það á stundinni. Íslenska þjóðin verður mörg árin að borga skuldir þessa óþokkalýðs.Eiga stjórnvöld að borga skuldir þessara gl...manna ? Ekki borga stjórnvöld mínar skuldir ! Af landi burt með Jón Ásgeir múlti milljarðamæring og allt hans hyski !
Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 13:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.